Menntun er máttur - afhverju verða þá sumir máttlausir í skólanum?

 

Ég hef verið að velta vöngum yfir skólastefnu og hvað skólinn stendur fyrir. Ég er sjálf með ADHD, á barn með ADHD og eiginmann með ADHD. Við höfum reynd skólakerfið með misjöfnum árangri. Ég lærði jú í skólanum en kom einskis vísari út í lífið sjálft varðandi það hver ég var og hvaða styrkleika ég hefði. Það tók mig langann tíma að átta mig því hvað ég er fær um að gera. 

Í starfi mínu sem ADHD coach hef ég rekist á fjöldann allan af fólki sem að þekkir veikleika sína. Eftirfarandi dæmisaga úr skóla útskýrir afhverju svo er komið:

Dæmisaga um skóla 

Eitt sinn fyrir langa löngu ákváðu nokkur dýr að taka sig saman og drýgja einhverja hetjudáð til þess að mæta áskorun nútímans. Þau voru sammála um að farsælasta leiðin væri að stofna skóla. Dýrin tóku upp virka námskrá sem samastóð af hlaupum, flugi, sundi og klifri. Námskráin tók yfir allar athafnir dýranna og margskonar líkamlega færni þeirra. Til þess að auðvelda umsjón með námskránni og gæta fyllsta réttlætis, þurftu öll dýrinn að leggja stund á allar námsgreinarnar og tóku ávalt samræmt próf í greinunum.  

Öndin var frábær í sundi, meira að segja betri en sjálfur kennarinn, en hún náði naumlega fullnægjandi einkunn í flugi og var afar lélegur hlaupari. Þar sem hún hljóp of hægt var hún látin sleppa sundi og æfa hlaup í staðinn í sérstökum hlaupa sérkennslutímum. Þessu var haldið til streitu þar til  fætur hennar voru orðnir svo sárir að hún átti erfitt með að synda og varð því aðeins meðalnemandi í sundi í lok annar. En meðaltal var viðunandi í skólanum svo enginn kippti sér upp við það nema öndin. 
 
Kanínan var í byrjun skólagöngunnar best í hlaupum, en fékk fljótlega taugaáfall sökum mikils álags við að bæta sig í sundi. Kanínur og sund eiga illa saman.  

Íkorninn var frábær í klifri þar til hann smám saman missti sjálfstraustið vegna flugtímanna. Kennarinn vildi nefnilega að hann hæfi sig á loft frá jörðu í stað þess að stökkva af trjákrónunum og niður til jarðar. Hann fékk líka vöðvakrampa af of mikilli áreynslu. Í einkunn fékk hann síðan C í klifri og D í hlaupum.  

Örninn var vandræðafugl. Reynt var að aga hann en með engum árangri. Í klifurtímum var hann fyrstur allra að komast efst upp í tréð, en þrjóskaðist við að nota sína eigin aðferð til að komast þangað. Hann neitaði algjörlega að nota þá aðferð sem ætlast var til af skólanum og lenti útí kuldanum. 

Í lok skólaársins var það svo kamelljón sem synti allvel og gat líka hlaupið, klifrað og flogið dálítið sem fékk hæstu meðaleinkunn og dúxaði þar með í skólanum.

Þetta er merkileg saga og fær hún mann til að hugsa. Ég hef þurft að leggja til hliðar margar hugmyndir sem að hafa ekki þjónað mér vel í gegnum tíðina. Ein af hugmyndum sem ég hef verið að leiðrétta hjá mér er hver ég er ekki, og að það er í lagi að vera ekki fullkominn.

Ég nota æðruleysis bænina til að sætta mig við sjálfa mig:

 Guð gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við þá manneskju sem ég er,
kjark til að viðurkenna hver ég er ekki
og vit til að greina þar á milli

 


Hvað er ADHD Coaching?

Hvað er ADHD Coaching?

Samvinna
ADHD coaching er samvinna milli coach og skjólstæðings sem ætluð er til að hjálpa honum til að lifa áhrifaríkara og fyllra lífi með því að dýpka skilning þeirra, bæta frammistöðu og auka þannig lífsgæði og lífshamingju hans.

Frammistaða
Einstaklingar með ADHD þurfa að horfast í augu við atriði tengd ADHD sem geta haft áhrif á frammistöðu þeirra í lífinu. Meðal þeirra er ofvirkni, hvatvísi og athyglisbrestur. Algengt að einstaklingar með ADHD þurfi hjálp við að trúa á sjálfa sig, oftar en ekki trúa þeir því að þeir geti ekki náð markmiðum sínum því þeir eru með ADHD.

Hvað gerir ADHD coach?
ADHD coach hjálpar skjólstæðingum sínum að skilja hvað ADHD er og hvernig það hefur áhrif á frammistöðu þeirra í lífinu. Auk þess hjálpar ADHD coach skjólstæðingi sínum að skipuleggja sig, að setja sér markmið til að hann geti eignast fyllra og hamingjuríkara líf og hvetur hann áfram. Coaching hjálpar skjólstæðingum með ADHD að vinna að markmiðum sínum, hrinda úr vegi fyrirstöðum í lífinu, vinna á algengum ADHD vanda eins og tímastjórnun, skipulagsleysi, lélegri sjálfsmynd, öðlast skýrari hugsun til að starfa á áhrifaríkari hátt. ADHD coach hefur fulla trú á skjólstæðingum sínum, þeir eru færir um að finna svörin sjálfir og hefur hann ávallt í huga að hver og einn einstaklingur hefur sína einstöku hæfileika.

ADHD coaching hjálpar skjólstæðingum:

  • Að skilja að erfiðleikar hans eru vegna ADHD en ekki vegna þess að hann er gallaður.

  • Að skoða vandlega þá þætti sem skjólstæðingurinn þarf að taka á.

  • Að styrkja sjálfsvitund sína og færni til sjálfsskoðunar til að bæta ákvarðanatöku og frammistöðu.

  • Að breyta viðhofum þegar hann kemst ekki áfram ( þ.e.a.s lærir að vinna með frestunaráráttu, fullkomnunaráráttu, halda sér við verkefni og að verða samkvæmur sjálfum sér).

  • Að verða meðvitaðri um hvaða aðferðir hann þarf að nota til að læra og vinna og hvaða leiðir hann kýs að fara í þeim efnum til að bæta frammistöðu á því sviði.

  • Að standa með sjálfum sér og tjá sig um þarfir sínar, og setja mörk.

Þegar þú byrjar í Coaching verður þú að vera skuldbundin þeim tímum sem að við höfum samið um að hittast á .  Vertu alveg v iss um að þú  getir staðið undir þeim kröfum sem að coaching gerir til þín áður en þú byrjar.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband